12 ágúst 2010

Súðavík. 1995

Harmur hendir mannaból
á hinstu stundu nætur.
Gripinn burtu gleðisól
nú gamla landið grætur.

Nú gamla landið grætur
gautahringa sinna
sem fara nú á fætur
á foldu blárra himna

Efnisorð: