Í VORÞEYNUM
Á meðan brimið þvær hin skreipu sker og skýjaflotar sigla yfir lönd,þá spyrja dægrin: Hvers vegna ertu hér,hafrekið sprek á annarlegri strönd?
Það krækilyng sem eitt sinn óx við klett og átti að vinum gamburmosa og stein,er illa rætt og umdarlega sett hjá aldintré með þunga og frjóa grein.
Hinn rammi safi rennur frjáls í gegnum rót er stóð í sinni moldu kyr,en öðrum finnst sig vanta vaxtarmegn þótt vorið fljúgi í lofti hraðan byr.
Drýpur af hússins upsum erlent regn,ókunnir vindar kveina þar við dyr.
Úr Landsuðri, 1939 -Jón Helgason

Efnisorð: Jón Helgason

<< Home