11 ágúst 2010

Eftir fjöru fellur flóð

Unnars dætur feykja falda,
fagran stíga dans á sjá.
Eftir storminn lifir alda,
undarlega brött og há,

Óma ægis hörpu hljóð,
yfir húm og heima.
Eftir fjöru fellur flóð,
og flæðir yfir hleina.

Efnisorð: